Jæja ég var að hugsa um að deila með ykkur sögu af 2 vinum mínum :P

þeir fóru að hjóla snemma dags ánægðir og glaðir.
Annar er á Suzuki RM 85cc og hinn er á Yamaha YZ 85cc big wheel.
Þeir voru að hjóla utanvegar á jeppa stíg síðan fóru þeir á einhvern annan stíg
og stoppuðu þeir að hvíla sig og spjalla.
Svo allt í einu fékk annar fast högg í öxlina og leit við og sá einhvern mann með kúst standa þarna.
Svo öskraði hann að þeir ættu að drulla sér í burtu og hélt áfram að lemja þá og sparka í þá.
Og spurði þá hvort þeir vildu að hann væri alltaf í garðinum þeirra, Suzuki gaurinn svaraði
á móti já já mér yrði alveg sama. og þá tók gaurinn kústinn og barði hann í hausinn.
Yamaha gaurinn sagði síðan við hann að hætta að lemja sig og hjólið. Og þá trylltis
gaurinn með kústinn og sparkaði honum af hjólinu.
Hoppaði hann aftur á hjólið og drulluðu þeir sér í burtu.
P.S. Þeir voru í inkeyrslunni hjá gaurnum en ekki garðinum.

Ég vissi ekki að það væri til svona steikt fólk :S