Finnin Juha Salminen og Ivan Cervantes frá Spáni unnu báðir sína flokka á KTM í fyrri daginn í annari umferð heinsmeistarakeppninar í enduro sem haldin var um helgina í Gulmares, Portugal. Stefan Merriman Ástralíu vann svo Enduro 1 flokkinn á Yamaha . Salminen var 1 mínutu á undan næsta manni í flokknum og Merriman var með 39 sek forystu í sínum flokk. “Þetta var mjög góð keppni og ég hafði mjög gaman af þessu. Takmarkið er að vinna ”overall“ líka í ár” sagði Salminen. Staðan er þá sú í heimsmeistarakeppninni að Cerventes, Salminen og Knight eru í fyrstu 3 sætunum á KTM og Merriman er fjórði á Yamaha.