Supercross Daytona Seinustu helgi Eins og flestir vita var Travis Pastrana að keppa í fyrstu keppninni sinni í rúmlega ár seinustu helgi. Pastrana lenti í riðli á móti Kevin Windham og rústaði honum, svo var hann fyrstur fyrstu 10 hringina í aðaðriðlinum áður en vindurinn fauk úr honum.
Þetta er samt ósköp eðlilegt þar sem kallin hefur ekki gert mikið af því að hjóla undanfarið og er því ekki í góðu formi. Keppnin gekk vel fyrir sig og var það Chad Reed sem fagnaði sigri.

Því miður verður ekki supercrossið sýnt upp í Nítró næsta föstudag vegna þess að það verður ekki sýnt á Sýn, eitthvað vegna samninga.

Samt verður sýnt frá næstu keppni þar, semsagt þarnæsta föstudag.
Fáum við þá að sjá snillinginn Travis Pastrana.