Nú er ljóst að Chad Reed getur ekki varið SXGP titlinn sinn frá því í fyrra því hann meiddi sig á öxl þegar hann var að spila pool og þarf að fara í aðgerð, en eins og áður hefur komið fram þurfa menn að keppa í fyrstu 2 umferðunum sem haldnar eru í evrópu til að geta unnið heimsmeistaratitilinn. Eins og allir vita þá er helsti keppinautur hans Ricky Carmichael líka meiddur og getur hann ekki heldur varið sinn SX titil (já ég veit þetta er flókið, 2 titilar og bla bla bla) þannig að 2004 verður á nýrra meistara. Meiðsli Chad Reeds eru reyndar ekki eins slæm og hans Ricky og stefnir hann að því að mæta til leiks í Janúar þegar “aðal” SX tímabilið byrjar þannig að við fáum að sjá alvöru action þá.

Hey ég mæli með því að þið spilið ekki POOL það er stór hættulegt!!

Kv,Langston