Mig langar bara að spyrja hvað sé í gangi með þetta áhugamál. Það er aldrei neitt að gera hérna, einginn að senda inn myndir, greinar, kannanir o.fl.
Ég man á þeim tíma sem allir voru allir að hvarta hvað admininn væri ekki virkur en nú er WISS búinn að sjá um admininn. Og er mjög virkur og kemur oft á dag inná til að tjekka hvort það séu nýjar greinar!!!

En það er alltaf einhver að tala um að fara að senda inn greinar og þannig en síðan kemur aldrei neitt inn. KOMMON!!! Oki ég vona að þið hugsið ykkar gang og við komum þessu áhugamáli niðri TOPP 10;).

Það er bara takmarkið að láta alla hjólamenn fara hingað inn-á og byrja að gera þetta áhugamál virkt. Og ekki bara vera að skrifa eitthvað stuttar greinar sem WISS flytur á kork heldur eitthvað almennilegt.

Vona að þið munið gera þetta því þá verður miklu skemmtilegra að koma hér á hugi.is/motorhjol og geta verið að lesa nýjar greinar og svara.

Takk fyrir mig,
Langston