Hér er smá INFO um feril hans.

Ferill Pastrana hefur verið stuttur en skrautlegur með eindæmum. Þrátt fyrir að hafa ekki unnið motocrosstitil í lengri tíma hefur þessi hávaxni drengur átt miklum vinsældum að fagna. En undanfarin misseri hefur farið að halla verulega undan fæti hjá honum. Hann hefur lent ítrekað í meiðslum, ekki bara á hnjám (sem plagar flesta stóra stráka) heldur veiktist hann illa síðasta ár og leið yfir hann oftar en einu sinni í keppnum og á æfingum. Ekki gott. Svo var það stóri áreksturinn fyrir stuttu þar sem hann klessukeyrði Corvettuna sína og slasaðist nokkuð. Síðast en ekki síst alvarlegar eru þær uppákomur er Travis hefur dottið illa á höfðuðið í “freestyle” keppnum og misst meðvitund. Nú síðast í Gravity games er hann reyndi gífurlega erfiða útgáfu af “backflip” sem endaði illa. Lá kappinn meðvitundarlaus um hríð en stóð svo upp of ráfaði um svæðið. Stuttu síðar hljóp hann til áhorfenda sem tóku honum fagnandi en augljóst var að Travis var ekki heill, hann talaði óskýrt, vissi ekki alveg hvar hann var né hvað hafði gerst. Að sumu leiti er þessi magnaði íþróttamaður farinn að minna á Muhammad Ali en hann fór að haga sér svipað eftir ítrekuð höfuðhögg.

Nú er svo komið að þessi slysahrina Travis virðist vera farinn að skaða drenginn og hafa margir áhyggjur af því. En hvers vegna öll þessi óhöpp hjá þessum eina manni?