Núna hefur nýtt lið bæst við í sportið. Þetta lið heitir Team Nikita og eru einungis stelpur í liðinu og eftir því sem vefstjóri best veit mun það haldast þannig. Þetta er náttúrlega stórkostleg tíðindi því að þetta verður eina stelpuliðið sem er að keppa á Íslandi. Þær munu keppa í fyrsta sinn í motocrossinu á Selfossi.

Meðlimir liðsins heita: <B>Heiða, Aníta, Sara og Ragnheiður</B>

Admin óskar stelpunum til hamingju með liðið og gangi þeim vel í framtíðinni.


Mér finnst gott að stelpur séu byrjaðar að keppa í sportinu á fullu og vona ég að það muni haldast áfram…..