P.S lánað af enduro.is:S


Endurotillögur!.

Það sem kom fram á fundinum hjá VÍK um daginn voru ágætis tillögur varðandi komandi Enduro sumar. Það er ljóst að það þarf að auka stigafjöldann í Enduroinu fyrir Meistaradeild.

Eftir að hafa velt þessu fyrir mér fram og aftur með það í huga að nýta daginn sem best og skapa sem minnsta slysahættu á keppendum er mín tillaga svona:

B-flokkur keppir á undan í lágmark 60 mín og hámark 90 mín (best væri að keppa í 60 mín í fyrstu keppni, 75 mín í annarri og 90 mín í þeirri síðustu).

Meistaraflokkur keppir svo strax á eftir B- flokki í 90 mín og er svo flaggað út. Þegar þeir eru komnir í mark mega þeir ekki fara inn í pitt til að fylla á bensín né þiggja neina þjónustu eftir að þeir eru flaggaðir 5-10 mín á eftir að síðasti maður er kominn í mark er ræst aftur og þá jafnvel í öfugan hring aftur í 90 mín. Með þessu eru komnar tvær keppnir og búið að tvöfalda stigin til Íslandsmeistara. Eini gallinn við þetta er að þeir sem detta út í fyrri umferðini eru með fullann tank af bensíni og óþreyttir. Þess vegna væri réttast að ræsa í seinni keppnina eins og menn komu í mark í fyrri keppninni, en ekki eins og reglurnar segja til um að staða til Íslandsmeistara ráði alltaf starti, heldur árangur dagsins. Þetta þarf ekki að vera kostnaðarauki fyrir keppnishaldið það þarf bara að byrja aðeins fyrr á fyrstu keppni (mæting kl 9,00 á morgnana) og verðlaun eru eins og í crossinu samanlagður árangur dagsins ræður verðlaununum.

Með þessu fækkar stigunum í B-deild fyrir liðin því þeir keppa bara einu sinni yfir daginn. Því ætti að vera meiri ávinningur að vera með allt liðið í Meistaradeild og ná sem flestum stigum þar fyrir liðið. Einnig mætti athuga með það að aðeins 1 úr liðinu megi keppa í B-deild, en hinir 3 verði að vera í Meistaradeild.

Hvað B-deildina varðar þá var reynt á Hellu fyrirkomulag er kallaðist Lágvarðardeild. Þetta þrælvirkar ef rétt er af staðið. Það sem var að á Hellu í Lágvarðardeildini var að forgjöfin sem keppendurnir fengu var of mikil. Ég fór yfir tímana á öllum sem kepptu í þessum flokki og gaf ég þeim 30 sek í forgjöf en ekki eina mín eins og keppt var eftir og útkoman var sú að ef að allir hefðu haldið út keppnina á sínum besta hring hefði munað aðeins 30 sek á efstu 3 mönnum og voru þar bæði elsti keppandinn og sá yngsti.

Eftir hverja einustu keppni hefur verið talað um það að þessi og hinn slepptu hliði og ættu að fá refsingu samkvæmt því. Við þessu er einföld lausn: Það er að dæma VÍTI á keppanda. Það er þannig að keppandi sem brýtur af sér er settur inn í þar til gert hólf er kallast “SKAMMAKRÓKUR” og þar má hann ekki þyggja neina þjónustu á meðan að á refsingu stendur. Þá er væntanlega spurt hver dæmir víti? Það eru 3-5 starfsmenn sem vinna við keppnina (t.d. keppnisstjóri, yfirtímavörður, brautarstjóri, stopp flaggari og hliðverðir) þetta er gert í Formúla 1 keppnum og hlítur að vera hægt að aðlaga þetta að Enduroinu. Ef keppandi hlýðir ekki skipun um að koma í “Skammakrók” í tvígang þýðir það sjálfkrafa keppnisbann í næstu keppni. Einnig vil ég koma hliðvörðum inn í braut sem aka sömu akstursstefnu og keppendur og laga það sem þarf að laga í brautinni ásamt því að aðgæta hvort braut er ekin rétt og skrá eða tilkynna brot til keppnisstjórnar eða dómnefndar. Þetta ætti að koma í veg fyrir að menn sleppi hliðum því að vera settur í “skammakrók” fyrir framan pyttinn er það sem enginn keppandi vill. Eitt er víst að þeir óheppnu sem þarna lenda verða ósáttir og mótmæla , en í öðrum íþróttagreinum þar sem víti er dæmt hef ég ekki enn séð dómarann breyta eða hætta við að taka víti.

Ég hef ýmislegt við þetta að bæta, en ætla að láta staðar numið í bili og vil að menn tjái sig um þetta á spjallkorknum á t.d. enduro.is svo kemur meira síðar í vetur svo sem framkvæmd keppna, staðarval fyrir keppnir, og margt fleira hvað varðar Enduro.