Frændi minn og vinur hans Einu sinni var ég að leika mér, bara einhverstaðar sem ég man ekki hvar. En þá kom frændi minn og vinur hans á mótorhjólum. Vinur hans var að fá sér nýtt mikið betra en hann átti áður, það var rosa flott. Þeir fóru að lítilli brekku ætluðu að fara í keppni hvor hoppaði hæðst. Ég bauðst til að dæma hver hoppaði hærra. Þá byrjaði keppnin, fyrst hoppaði vinur hans, hann hoppaði hálfan meter ca. svo kom frændi minn, hann hoppaði aðeins meira, þá sagði ég þeim að það væri best að hafa 3 umferðir. Þeir samþykktu það, vinur hans hoppaði í öðru hoppinu 1 meter en frændi minn það sama og í síðasta hoppinu hoppaði vinur frænda míns bara hálfan meter. Hann blótaði pínu heyrðist mér en varð svo glaður og fór að monta sig og sagði að hann ætti ekki möguleika. En frændi minn stökk að minnsta lagi 1 og hálfan meter og fór að monta sig út í vin sinn. Vinur hans fór svegtur heim, frændi minn fór stoltur heim og ég fór sáttur heim ;) .

Takk fyrir
Kveðja, sopranos