Hér ætla ég að láta fylgja grein sem ég skrifaði á laugardagskvöldinu á Klautri þegar enduroið var nýlokið og flestir blindfullir. Bara minna á allar nýjustu fréttirnar í mótorhjólaheiminum eru á <a href="http://www.icemoto.com"target=_blank> www.icemoto.com </a>

Offroad Challenge Klaustri


Veðrið var eins gott og það gat verið á laugardaginn þegar Offroad Challenge keppnin var ekin við Efri-Vík. Það voru rúmlega 200 keppendur mættir til að keppa í þessari stærstu mótorhjólakeppni Íslandssögunar.
Eftir skoðun og skráningu var byrjað á að keppa í unglingaflokki þar sem 16 keppendur keppti í 40 mínútna keppni. Sú keppni var haldin í sérstakri braut hliðin á aðalbrautinni. Það var Gunnlaugur Karlsson sem tók forustuna strax í fyrsta hring og hélt henni allt til loka og sigraði hann með 10 ekna hringi á tímanum 44:05.
Annar var Aron Ómarsson á tímanum 45:49, en eftir hörkubaráttu um þriðja sætið á milli Freyrs Torfasonar, Helga Márs Gíslasonar og Svavars Friðrik Smárasonar varð Freyr Torfason þriðji á tímanum 48:13
Í 6 tíma keppnina hófu 180 keppendur keppnina á slaginu 12:00 og framundan var 6 tíma þolaksturskeppni. Af þessum 180 keppendum voru 16 sem hugðust aka einir í alla 6 klukkutímana. Brautin sem var 15,6 kílómetrar og skiptist í hóla, sand, grjót og brattar brekkur. Ekki er ólíklegt að jarðskjálftamælar á Suðurlandi hafi mert titriting þegar að keppendurnir 98 ruku allir af stað í einu með þrumugný. Strax í fyrsta hring tók Micke Frisk sem ók með Valdimari Þórðasyni á Suzuki forustuna og hélt henni fyrsta hringinn. Í öðrum hring tóku forustuna Ragnar Ingi Stefánsson og Tony Marshall á Hondu og héldu forustunni í næstu þrjá hringi þar á eftir, en í sjötta hring náðu Mike og Valdimar forustunni aftur í einn hring en í áttunda hring náðu Viggó Viggóson og James Mahrs á TM forustunni og héldu henni allt til loka. Hraðasti hringur þeirra var einnig hraðasti hringur keppninnar 21:24 og var það í tíunda hring.

1. 61-James og Viggó 16 hringir 365:37 mín.
2. 7-Micke og Valdimar 16 hringir 369:33 mín.
3. 58-Ragnar og Tony 16 hringir 377:41mín.
4. 16-PG og Einar 16 hringir 380:19 mín.

En þetta voru einu keppendurnir sem luku 16 hringjum. Aðrir keppendur luku færri hringjum.
Í einstaklingskeppninni þar sem keppandi var bara einn að keppa og þar af leiðandi ekki með neinn til að leysa sig af þegar þeir voru orðnir þreyttir. Í fimmtugasta og sjötta sæti í heildina var Bragi Óskarsson af þeim 16 einstaklingum sem óku einir.

1. 76-Bragi Óskarsson Honda 12 hringir 382:34 mín.
2. 2-Pétur Smárason KTM 12 hringir 388:16 mín.
3. 107-Ásgeir Jamil Allansson Honda 11 hringir 362:14 mín.

Fréttaritari icemoto á staðnum ákvað að taka þátt í keppninni til að sjá sem mest af henni. Það sem vakti athygli hans var hversu brautin var vel og augljóslega merkt, hættumerki þar sem hætta var frammundan grjót og annað. Það var sérstök upplifun að vera akandi inn í brautinni þegar að hröðustu ökumennirnir hringuðu fréttaritarann og var svo lítið sérstakt að sjá mismunandi aktursstíl ökumanna. Sérstaklega vakti aðdáun aktursstíll PG-Lundberg, en hann ók á ótrúlegum hraða á grýttustu köflunum og sandinum þar sem flestum þótti erfiðasti kafli brautarinnar.

Með kveðju og um von að allir nutu góðs á því að lesa þessa grein.

Ykkar Admin,

Wiss