Tékkið á þessu::
Um helgina verður glæsileg mótorhjólasýning hjá Honda Vatnagörðum 24. Kynntar verða 2003 árgerðirnar af götu- og torfæruhjólum ásamt ýmsu öðru skemmtilegu. Þarna verða að sjálfsögðu öll torfæruhjól sem Honda framleiðir um þessar mundir. Þetta eru hjól eins og CR motocross hjólin í vélarstærðum 85-125-250-F450 og svo endurohjólin XR í nokkrum stærðum 50-80-100-250-400-650. Götuhjólin eru líka allnokkur og þau heita öll fallegum nöfnum eins og Superblackbird, Shadow og svo ofurvespan Silverwing. Keppnislið Honda verða auðvitað kynnt og liðsmenn þess verða á staðnum til að gefa góð ráð. Nýjustu freestyle og motocross myndirnar verða svo sýndar á breiðtjaldi. Honda umboðið, Bernhard hf, býður alla velkomna á laugardag og sunnudag og er opið 12-16 báða dagana.