Þar sem vetur hefur verið almennt snjólítill og frábær ætla Ólafsvíkingar að skella á einni vetrarmotocross keppni í lok mars. Keppt verður í öllum hefðbundnum flokkum ef skráning verður næg og verða flottir bikarar í verðlaun. Keppnin verður í Ólafsvík laugardaginn 29.mars og hefst klukkan 13.00. Skráningu lýkur 22.mars klukkan 20.00 og eingöngu verður skráð hér á netinu.

Ef skráðir keppendur verða færri en 25 verður keppnin felld niður. Skráningargjald er kr. 3000 í alla flokka. Ef veðrið verður óhagstætt, seinkar keppninni um viku. Skráning í keppnina mun hefjast á netinu á morgunn

ps. og allir að skrá sig og allir að mæta :)