Íslenska hjólaveðrið er rigning og oft rok, en okkur er alveg sama…….





Sú ýmind er á mótorhjólafólki um heim allann að þetta sé iðjuleysingja og dópista pakk sem geri fátt annað en að stela frá heiðarlegu fólki, ríða dætrunum þeirra og pissa í garðana, svona á milli þess sem þessir útsendrar djöfulsins skipuleggja klíkustríð og finna nýjar smyglleiðir frá Argentínu til Keflavíkur.

Reyndar prófar karlpeningurinn í mótorhjólageiranum soldið þetta með dæturnar og garðana en yfirleitt með frekar litlum árangri.

Tilfellið er nefnilega það að þessir svartleðruðu djöflar og valkyrjur eru svo sundurleitt og hrætt og óskipulagt fólk að það í krafti stöðu sinnar getur ekki einusinni fengið lækkuð triggingariðgjöld á fákum sínum. (ég er T.D. nokkuð viss um að franskir bændur væru búnir að gera eitthvað í málinu)
Annars er ég bara í tveim klíkum sem er “LONER” og þar er ég af sjálfsögðu einn, og svo Gamlingjum sem er mjög skemmtilega samsettur hópur af snillingum.

Ó nei, ó nei góðir hálsar við mótorhjólafólk erum öll hin meinlausustu inn við beinið, við eigum bara voðalega skemmtilegt dót til að leika okkur að og okkur finnst bara svona gaman að lifa.

Það hættulegasta sem venjulegur mótorhjóla töffari lendir í eru:
Bílstjórar og hálka og af sjálfsögðu Disco tónlist (sem samhvæmt nýlegum rannsóknum veldur krabbameini, blettaskalla, liðagigt og skammdegisþunglyndi hjá mótorhjólafólki).