Chad Watts sem hefur verið mekki (viðgerðarmaður) fyrir Ricky Carmichael síðastliðin sex ár, er farinn í veikindafrí…

Watts hefur verið slæmur í hendinni í nokkurn tíma og ætlar að láta athuga þetta. Í stað hans kemur Mike “Goose” Gosselaar sem er einmitt pabbi Chris Gosselaar sem keyrir fyrir Amsoil/Chaparral Honda.

Watts er einn sigursælasti mekki sögunnar. Hann hefur unnið 8 stóra titla með Carmichael auk 3 125cc titla (Tvo þeirra með Mickael Pichon). Chad átti einnig stóran þátt í hinu fullkomna sumri hjá RC í fyrra.