Jæja, nú er á döfini beta weekend (23. - 25.mars) í Guild Wars 2 og þætti mér óskaplega gaman að hugarar jafnt sem flestir íslendingar gætu komið sér saman um hvaða server/realm (ef það verður eitthvað úr að velja sem ég geri jú ráð fyrir) íslendingar ætla að spila á.

Að sjálfssögðu getur það reynst erfitt þar sem serverarnir opna sennilega ekki fyrr en betan opnar eða stuttu áður en ég hvet alla til að kíkja á þennan þráð þegar nær dregur til að sjá hvar Íslendingar koma til með að eyða helginni.

Hlakka til að sjá ykkur online (kannski) í fyrstu opnu beta helginni og gangi ykkur sem allra best ;)

Bætt við 20. mars 2012 - 10:29
Edit: Ég var hreinlega ekki viss hvort ég ætti að setja þennan þráð í “Guild Wars” flokkinn eða hér, fannst kannski líklegra að menn myndu taka eftir þessu hér en stjórnandi má að sjálfsögðu færa þetta.