Ég ákvað (þar sem leikurinn kostaði ekki nema 3299 ;) að fá mér evrópsku útgáfuna af leiknum þar sem ég er ekki þolinmóðasta týpan þegar kemur að tölvu málum. Loggaði mig svo inná Excalibur serverinn, Midgard realm og er núna með 8. lvl Healer að nafni Thormar.

Pingið hefur ekkert verið að stríða mér, alltaf grænir þessir þrír guttar sem eiga að tákna það. Það hafa að jafnaði verið um 1000 manns á servernum þegar ég er að spila og var ég nú síðast í 8 manna grúppu í góðum fíling. :)

En þá kemur stóra spurningin, eru einhverjir íslendingar að spila þarna? Það væri ekki slæmt að geta grúppað með þeim ef svo væri. :)