Vegna erfiðleika Aventurine tel ég líklegt að leikurinn muni ekki koma út umtalaðann útgáfudag, eða 25. febrúar 2009.

Ég er bara að vara ykkur við, ef DarkFall kemur ekki út þennan dag að verða ekki búin að binda allar ykkar vonir við þennan dag. Ef þið hafið gert það verður næsti mánuður hreinasta helvíti.

Ekki fara að fleima þennan þráð bara af því að þið viljið ekki trúa þessu, en ef Aventurine ætlar að gefa leikinn út þann 25. þá verður hann ókláraður - eins og Age of Conan (ekki alveg eins ókláraður þó).

Eina ástæðan af hverju þeir ættu að gefa hann út 25. væri út af hópþrýstingi - helmingur Forumfalls mun verða brjálað.

Leikurinn er ekki tilbúinn! Gefum þeim örlítinn tíma enn - betri er að fá Darkfall en annan Age of Conan.