Jæja, nú þarf ég smá ráð.

Þannig er mál með vexti að 11 ára gamall frændi minn er alveg sjúkur í að spila MMORPG og vill helst fá að spila WoW en mamma hans bannar honum það :) Þau eru að reyna að komast að einhverri málamiðlun, og einhver vinur hans stakk uppá Adventure Quest (aq.com). Mamma hans spurði mig hvað mér fyndist þar sem leikurinn er víst bannaður innan 13 en málið er bara að þó ég sé tölvuleikjanörd dauðans þá spila ég enga svona leiki!

Þess vegna spyr ég ykkur, fagmennina, er óhætt að hleypa 11 ára gutta í þennan leik?
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _