Sælt veri fólkið.
Mig langarði til þess að skrifa nokkrar línur og spyrjast fyrir um álit fólks á því merkilega fyrirbæri hversvegna
karlmenn sem spila þessa svo kölluðu MMO leiki spili sem kvenkyns persónur. Hvaða skýring þér finnst líklegust á
þessu atferli okkar? Er það bara útaf því að það er hægt? Er þetta eitthvað sem við sækjumst í því að einhverstaðar
innra með okkur býr lítil kona sem vill brjótast út í
hlutverki brjálaðrar álfakonu með stórt sverð? Hvað segi þið drengir?

Besta kveðja,
Rames.