Sælt veri fólkið.

Ég hef verið að lenda í þessu sjálfur en hef nú komist að ýmsu. Þessi villa er margþætt. Hjá mér er hún sú að ég þurfti bæði að opna fyrir öll port (s.s. eitthvað falið port sem ekki kemur fram hjá WAR að sé í notkun þannig að ég þurfti að opna fyrir öll portin í routernum).

En það sem var einnig að var það að það þurfti að endurræsa routerinn. Ég er ekki í raun viss um að neitt annað hafi þurft en hef það þó á tilfinningunni að portin verði að vera opin líka. Ég er þó ekki viss og mun láta ykkur vita þegar ég hef prufað það.

Þannig að endurræsið routerinn líka, ekki bara opna fyrir portin. Jafnvel byrja einungis á því að endurræsa routerinn, svo prufa að opna öll port.