Ég var núna nýlega að byrja að spila Lord of the rings online og allt gekk vel, leikurin virkar fínt og ég skemti mér konunglega. En eftir að hafa spilað í 1 - 2 klukkutíma þá fraus leikurinn og skjárinn varð bara blár og hvítir stafir sem vöruðu mig við að allt væri að hrinja, man ekki nákvæmlega hvað stóð.
Kannast eithver við eithað svipað og kann hugsanlega eithverja lausn á þessu?

Bætt við 12. maí 2007 - 01:05
Og einmit núna lenti ég í því að talvan fraus, skjárin varð svartur og eina sem ég heirði voru veinin í eithverju bori sem ég var að drepa aftur og aftur.
Hvað er eiginlega í gangi? ég veit að talvan á að ráða auðveldlega við leikin
kveðja