Eins og flestir vita kemur leikurinn út 24. apríl!
Við erum 4 vinir sem erum búnir að spila betuna í nokkurn tíma og erum ákveðnir í að tryggja okkur eintak af þessum frábæra leik.
Hinsvegar munum við ekki byrja að spila fyrr en um miðjann maí útaf prófunum :(
Við erum búnir að prufa alla classes og races og erum búnir að ákveða hvað við ætlum að vera og allt það.

En eins og áður kom fram erum við einungis 4 og okkur vantar fleyri til að hjálpa okkur í gegnum leikinn og erum að vonast eftir að næla okkur í nokkra Íslendinga í kinshipið okkar.
Þessvegna megiði senda mér póst hér á huga ef þið viljið ganga til liðs við okkur. Við getum veitt ykkur hjálp í leiknum, bæði við að velja class og race oflr.

Við munum örugglega hafa eitthvað aldurstakmark en við höfum ekki ákveðið hvað það verður.
Og einnig væri einhver reynsla í rpg leikjum vel þegin þar sem að við nennum ekki að fara að kenna einhverjum noobum á leikinn!

msg-ið mig ef þið hafið áhuga á að ganga til liðs við okkur og við getum talað betur saman.

Bætt við 14. apríl 2007 - 21:02
Ég sendi inn grein um allt sem þú þarft að vita til að byrja leikinn, vona að hún verði samþykkt :)