Sælir hugar(ar)

Ég hef verið að skoða Star Wars Galaxies soldið á netinu og mér finnst þetta líta soldið vel út, mig langar soldið að prófa hann. En ég reyndi að downloada 10 daga trialinu en það virkaði ekki, sagði mér að löka öllum forritum, deleta öllu í temporary og tékka á nettengingunni og opna svo setupið aftur, þetta kemur alltaf. Svo ég gafst nú upp á því. En þar sem þetta er MMORPG þá er alltaf soldið mál að prófa í smástund ánþess að þurfa að borga rugl mikið. Svo ég er með nokkrar spurningar:

1. Ef maður kaupir leikinn, fær maður fríann mánuð eða einhvern svoleiðis lúxus.
2. Er eitthvað gaman að þessu ef maður kaupir ekki alla expansion pakkana? (sem eru 3 er það ekki?)
3. Fæst þetta eitthvað á Íslandi ennþá?? Ég hef nú hingað til bara notað netið í leit minni en ég fann ekkert á skifunni.is, ekkert á elko.is og á bt.is fann ég bara eitthvað “Jump to lightspeed” sem hljómar nú eins og expansion, ekkert nóg að kaupa bara expansion? Og þar sem þetta er það eina sem ég hef fundið hingað til, hvað þá með gamecards og svoleiðis dót?

Jæja þetta ætti að vera allt

Bætt við 15. ágúst 2006 - 13:20
Jæja, smá update:
Ég fór í BT í kringlunni og skeifunni, í elko og í skífuna í kringlunni. Enginn átti upprunarlega leikinn og bara bt skeifunni átti yfirleitt Jump to lightspeed

Er þetta bara ófáanlegt hér á landi eða?
Palli Moon