Núna þegar prófin eru að verða búin og sumarfríið byrjar hafði ég hugsað mér að prufa einhvern mmorpg leik.

Ég hef verið að skoða leiki sem sumir vinir mínir eru að spila og það er mest WoW og eve.

En ég er ekki að fíla þessa leiki eins og með WoW þá þoli ég hann lítið þar sem að hann er of mikið svona ævintýraleikur sem er með mikið að göldrum og svona og ég veit að margir þessir mmorpg eru svipaðir WoW.

Þannig ég er að byðja ykkur um að benda mér á einhvern leik sem eru ekki fullur að göldrum og ekki einhverjum geimskipum (SW galaxies og eve)
helst einhvern raunverulegann.

Gott væri að þið mundið segja hvernig leikur þetta væri og fínt væri að frekar margir væru að spila hann (tala ekki um íslendinga).