Ég vildi bara benda fólki á leik sem ég rakst á fyrr í vor og hef spilað síðan með mikilli ánægju, þetta er leikurinn “World of Pirates” og eins og nafnið gefur til kynna þá er þetta í karabíska hafinu og á tímum þegar sjóræningjar voru hvað mest við líði og er stundum kallaður “Gullni tími Sjóræningjanna” eða um og í kringum 1605 eins og er raunin á leik tímanum í dag. Hægt er að taka niður lítinn pakka sem er á milli 50-100 mb http://worldofpirates.4players.de/wop/main_en.html <— þaðan og þar er eins hægt að stofna account. Kosturinn við þennan leik er að þú færð 10 klukkutíma til prufunar og getur svo keypt leikinn eður ei, verðið er 13 evrur og þetta er tilboð sem rennur út eftir sunnudaginn 26. Júní.
Grafíkin er lítil en þær manneskjur sem eru fyrir sjóræningja leiki og því tengdu verða ekki fyrir vonbrigðum með þennan leik.
Ég ætla ekki að dekstra ykkur meir en sem komið er, því serverinn sem í boði er bíður einungis upp á 600 spilara og í dag eru alltaf einhvers staðar á bilinu 60 til 130 að spila í einu.
Njótið góðs, kveðja Ingjebuzz aka Ari :)