Jæja, eins og flestir vita, sem fylgjast með Star Wars Galaxies, þá er Jump to Lightspeed að fara að koma út.
Mig langaði að forvitnast um það hvernig skip þið ætlið að fá ykkur?
Persónulega þá finnst mér Tie fighter (eða interceptor) freistandi sem imperial flaug, annars er ég að spá kannski í YT-1300 þegar maður mun eiga efni :). Síðan náttúrulega á ég eftir að sjá hvernig BH flaugarnar eiga að vera (svona sambandi við professionið sem ég er í :D).
En já, hvernig flaug stefnið þið á að fá ykkur?