Ég er núna að spila barsmíðadverginn Thrymil og er það hin mesta skemmtun. Hann er reyndar bara búinn að mæta til þjálfunar ein ellefu skipti, en á stutt í það tólfta!

Thrymill er með Kick, og Bash sem auka árásir. Kick er alveg stórsniðugt, en Thrymill er mjög hrifinn af tveggja handa vopnum og þar af leiðandi ekki með skjöld til að Bash'a með. Er þetta eitthvað sem hann ætti að breyta, þ.e.a.s. skipta yfir í einnar handa vopn og fá sér skjöld til Böshunar?

Nú er ég einnig að spá og spékúlera hvort að warrior bjóði upp á meiri fjölbreytileika, þegar hann hækkar um level? Einhverjar sér-árásir, eða aðra sniðuga hæfileika?

Kv,
Thrymill
“Ye think yer rough? Bwah!”