Counter-Strike clan'ið [.Hate.] var stofnað árið 1999 þegar beta 3 af CS kom út. Stofnmeðlimirnir voru einungis þrír, en fljótlega vatt clan'ið upp á sig og við bættist fjöldinn allur af góðum spilurum. [.Hate.] varð fljótt risi í íslenska CS heiminum og var mjög fyrirferðamikið á Skjálftamótum, tók þátt í CPL í Amsterdam og keppti í fimm CS deildum í Bandaríkjunum ásamt því að reka CS deild á Íslandi. Þegar mest voru yfir 50 meðlimir í [.Hate.]

Þegar [.Hate.] hætti keppni árið 2001 fór hópur úr clan'inu í Dark Age of Camelot en síðan hefur hópurinn tvístrast í hina og þessa MMORPG leiki svo sem Shadowbane, World of Warcraft, Everquest II, City of Heros, Age of Conan, Warhammer Online, Lord of the Rings Online, RIFT og fleiri mætti telja.

Þegar Star Wars: The Old Republic kom út, þá byrjaði stór kjarni úr gamla [.Hate.] CS clan'inu að spila aftur undir nafni [.Hate.] ásamt því að fá allmarga áhugsama MMO spilara í lið með sér. Um 100 spilarar (og tæplega 300 characterar) voru í Hate guildinu í SW:ToR og nærri allt "content" var klárað. Skipulögð voru 2-3 raid í hverri viku ásamt fleiri atburðum en áhugi spilara féll óvenjuhratt í SW:ToR.

Hate ætlar að fara í Guild Wars 2 þegar hann kemur út og reyna að halda saman þeim hópi sem saman var kominn til að spila Star Wars: The Old Republic enda sjaldséð að vera með 100 meðlima guild í MMO leik sem samanstendur einungis af íslendingum.

Ef þú hefur áhuga á að vera með - ekki hika við að skrá þig sem meðlim á www.gw2.swtor.is

14. maí verður opið beta stress test fyrir þá sem hafa keypt leikinn í forsölu "Pre-Purchase" og hafa registerað sig.
Skrá sig inná beta forums https://forum-en.guildwars2.com/forum til að downloada game client.