Einn góðan veðurdag(í fyrradag reyndar) þá kom ég heim úr skólanum kl að verða 2. Eins og venjulega var ekki mikið að gerast í bretaveldi og engar góðar grouppur til að joina, og of fáir til að stofna svo ég hélt út á vit ævintýranna og lét teleporta mig til skandinavíu í von um að finna þar eitthvað líf.
Ég labbaði um hlið Óðins í góðar 20 mínútur og fann ekkert líf.

Ugh.. Ég ákvað að fara að Nottmor Faste of fremja sjálfsmorð á guards, fljótlegasta leiðin heim, en þegar ég var kominn langleiðina að Nottmor þá datt mér í hug að sjá hversu langt ég kæmist inn í Miðgarð. Förinni var heitið í Upplönd, eftir að ég var kominn inn í Jamtland fjöll fór ég eins langt norður og ég gat og hélt förinni í austur, og mér til mikillar undrunar var ég kominn inn í Upplönd á augabragði, án þess að hitta svo mikið sem 1 vörð á leiðinni.
Ég hélt förinni áfram í austur þangað til að ég var kominn alveg austast í Upplönd og fór þá beinustu leið suður. Ekki leið langur tími þangað til að ég fann tröll á veiðum, blátt fyrir mig.
Ég ákvað að bíða þangað til hann væri búinn að regena og væri ekki í fight, svona til að minnka dónskapinn aðeins, ég hljóp að honum og það var greinilegt að hann var ekki alveg að átta sig á því hvað var að gerast því hann stóð bara kjurr og horfði á mig.. Þangað til ég tók upp sverðin mín og hjó hann í búta, hann streittist reyndar á móti en náði því miður(fyrir hann) ekki einu höggi á mig.
Ég fór örlítið lengra suður og þá tók ég eftir því að ég var kominn að Border gateinu hjá þeim, þá hélt ég að ég ætti ekki mikið eftir, enda ætti ekki að vera út í vörðum hérna.
Ég rakst á 8 manna hóp við veiðar á kröbbum, rétt austan við Border gateið, ég beið eftir að þeir voru búnir að regena og hljóp síðan inn í miðjan hópinn og byrjaði að drepa fólk í 2-3 höggum.
Þetta var helvíti skemmtilegt og ég fékk meðal annars að sjá nýja shapeshift dótið hjá berzerk. 7 menn féllu í valinn en healerinn náði að sleppa til varðanna við border gateið.
Núna fékk ég skilaboð á irc um að ég hefði drepið clanfélaga Aragons. So be it, hann ætti að vita að það er hættulegt að veiða í frontiers :)
Ég fór síðan rétt fyrir utan border gateið og faldi mig bak við tré og beið eftir fólki að labba framhjá til að stökkva á það.
Fyrstu sem löbbuðu framhjá voru Vikingur og einhver annar. Ég fletti Vikingur upp í gagnagrunninum mínum og viti menn, íslendingur.
Hann og vinur hans fengu að kenna á því ;)
Síðan geri ég ráð fyrir því að Wolcom(Balhzi) hafi frétt af mér þarna því að hann væri sá næsti sem ég sá, lítill blár kobold. Sem upplifði versta draum Skuggablaða, ég kom aftan að honum. Hann streittist aðeins á móti en það var ekki til neins, dagar hans voru taldir.
Ég fór aftur á staðinn þar sem ég drap þessa 7 menn að veiðum og viti menn þeir voru komnir aftur, í þetta skipti höfðu 3 vit á að flýja, en restin féll í valinn.
Stuttu seinna faldi ég mig aftur bak við tré og í þetta skipti tóks wolcom að koma aftan(að hlið) að mér og sá mig fyrst, en ekki til neins, hann var lengst upp í hlíðinni. Eftir þetta hófst smá eltingarleikur en ég náði honum á endanum og náði honum niður í uþb 40% líf(minnir mig) áður en hann sprintaði í burtu, ólukkulega fyrir mig hafði ég klárað orku mína í að elta hann uppi. Hann fór beinustu leið til varðanna við border gateið og taldi sig öruggan þar, fór að hlæja að mér og eitthvað þannig, ég var lengst upp í hlíðinni og sá vel yfir border gates, en þó langt frá honum. Við skiptumst á nokkrum emotions þangað til að ég kenndi honum smá á classinn minn. Núna veit wolcom litli að ég er með boga ;) Ég tók upp bogann og drap hann í 3 skotum.
Eftir þetta hafði hann eða einhver greinilega leitað eftir hjálp við að taka mig út, yellow con thane og green con hunter mættu á svæðið og ætluðu að sýna mér í tvo heimanna. Því miður fyrir þá voru þeir ekki með gott skipulag, og hunterinn var oftast langt á eftir útsendara Þórs. Ég drap útsendarann tvisvar sinnum, hann barðist vel og í seinna skiptið átti ég einungis í kringum 2-4% líf eftir, en átti þó nógu mikla orku til að sprinta úr færi frá hunternum.
En allir góðir hlutir verða víst að enda, thaneinn mætti aftur á svæðið, í þetta skipti einn(að ég hélt) og ég drap hann einu sinni enn, stóð aðeins of lengi við líkið og gerði /dance í kringum 100 sinnum….

Alveg þangað til að ég var stunnaður af yellow con skald :(
Needless to say þá náði hann að drepa mig, þótt ég hafi komið honum niður í um 50% áður en ég drapst.

En ég náði nú samt fram hefnd, mætti sama skaldi í RvsR seinna um kvöldið og klippti hann í búta :)
“I refuse to have a battle of wits with an unarmed person”