Sælir nú.

Fyrst, ég bjó til póstlista á Yahoo sem ég mæli með að allir Everquest spilarar á landinu sem hafa á huga á að röfla pínu skrái sig á :) línkurinn er hér neðst. Hann verður opinn fyrir öllum skráningum fyrst, en er ekki listed.. en eftir smá tíma verður þetta örugglega þannig að það þarf að samþykkja nýja.

Við erum búnir að vera tala um þetta í smá tíma, og höfum ákveðið að koma saman íslensku guildi í everquest á BB servernum. Við verðum að dunda okkur við þetta um helgina, og erum að vona að það verði slatta margir með strax. Við erum frá lvl 15 uppí 40 sem munum vera með strax í byrjun og vonandi fjölgar okkur hratt :)

Eftir að hafa spáð í nafni í smá tíma kom jonog með nafnið Asgardur, sem er í rauninni besta nafn sem ég hef heyrt á guildið síðan ég fór að spá í þessu fyrir jólapróf.

Ég verð örugglega að spila eitthvað í dag, en verð ekkert í kvöld, þannig að gefið mér tell í dag eða á morgun ef þið hafið áhuga á að vera með :D

Valamatt, 33lvl Cleric.
http://groups.yahoo.com/group/isleq