Nú styttist í útgáfu hins frábæra tölvuleiks Neocron. Þar sem fáir þekkja leikinn hér á Íslandi hef ég ákveðið að senda inn smá grein hér á huga. Þetta er online tölvuleikur gerist á 28. öldinni í borginni Neocron. Þú gerist íbúi í borginni þar sem þú færð íbúð sem þú getur innréttað, þú getur sótt um vinnu, þú getur farið í kappakstur á fljúgandi mótorhjólum og þú getur skotið fólk í tætlur svo eitthvað sé nefnt! Þú getur valið um 4 flokka persóna:
Tank: Hevví kallar sem berja þig í spað
Private Eye: venjulegur borgari
Spy: tölvunörd og gáfnaljós
PSI monk flokkur sem er afar þjálfaður í að nota PSI galdra
Allir flokkarnir nema Tank geta notað svokallaða PSI galdra. Þá verður þó að æfa sérstaklega og aðeins vel þjálfaðar persónur geta notað þá. Borgin skiptist niður í 4 hluta sem eru:
ViaRosso: fínt íbúðahverfi með matsölustöðum og verslunum
Plaza: íbúðahverfi með GEÐVEIKAN byggingarstíl
Pepper: Park strippbúllur og barir
Outzones: gamalt verksmiðjuhverfi
Einnig er stór eyðimörk í kringum alla borgina. Gerðar voru kjarnorkutilraunir í eyðimörkinni og nú eru þar allavega stökkbreytt dýr. Atvinna getur verið hvað sem er: t.d. að reka fyrirtæki, gerast launmorðingi, eða hafa verðbréfaviðskipti. Í Neocron er verðbréfakerfi þar sem allir geta keypt og selt verðbréf í hinum ýmsu fyrirtækjum. Einnig eru mörg félög (clans) sem hægt er að ganga í.

Útgefandi: CDV entertainment (Sudden Strike, Sudden Strike Forever)
Framleiðandi: Reakktor Media
Mánaðargjald: 10 Evrur
Útgáfudagur: febrúar/mars 2002
Staðan í dag: Beta test: level 3 ATH!!!! Enn er hægt að skrá sig í beta á www.neocron.com
Heimasíður: www.cdv.de www.neocron.com
Low Profile