Hæ, ég er nýbúin að uppgötva EQ og hef spilað í nokkrar vikur og líkar hann vel. Ég hef prófað mismunandi classa or þjóðflokka og er enn að leita mér að einum character sem mér líkar best við.

Hérna á þessu borði var sagt að íslendingar halda sig til á Bristlebane. Og frændi minn (systir hans sagði mér frá þessum leik) segir að allir séu á Drínal.

Og hér kemur spurningin. Hvar eru íslendingarnir?? Ég hef ekki hitt neinn einasta íslending á þessum serverum. Eru allir hættir að spila?? Það væri alveg mín heppni ef allir væru hættir núna þegar ég hef nýlega uppgötvað þennan leik.

Stina.