Venjulega myndi þetta ekki falla í flokk greina, en mig langar til þess að sem flestir taki eftir þessu og fái að segja sitt álit.

Ég og Vilhelm erum komnir inn sem nýir stjórnendur og langar til þess að gera eitthvað til þess að bæta áhugamálið. Með ykkar hjálp og hugmyndum ættum við að getað komið einhverju skemmtilegu af stað.

Einhverskonar pistlar, leikir eða bara hvað sem ykkur dettur í hug.

Hvaða korka hefur fólk áhuga á að fá inn?
Hvaða leiki eru flestir Íslendingar að spila? (fyrir utan EVE og WoW)

Ef þið hafið einhverjar spurningar, ekki hika við að spyrja.