Góðan daginn/kvöldið.
Ég ætla að byrja á því að segja að ég er ekki einhver plebbi sem veit ekki hvað veldin stóru heita í Star Wars heimnum, bara svona til að fólk lesi ekki fyrirsögnina og commenti á hana.
Svona sé ég allavega heiminn í Galaxies. Uppreisnarmennirnir eru miklu fleiri en stuðningsmenn veldisins og er stórhættulegt að vera overt Imperialisti nema þú sért með dágóðan stuðningshóp og langt frá allri siðmenningu.
Þegar ég byrjaði að spila þennan leik langaði mig auðvitað að vera uppreisnarseggur, “outnumbered and outgunned”, og lifa í heimi hættu, ofsóknar og misréttis, hversu undarlega sem það ku að hljóma. En svo var víst ekki. Þegar ég kom til plánetunnar Naboo var eitt af því fyrsta sem ég sá, í borginni Theed, hóp af uppreisnarseggum ráðast á veldismenn. Veldismennirnir náðu ekki að drepa neinn og voru 4 talsins á móti 7-8 uppreisnarseggum. Þetta hafði víst byrjað þannig að einn impinn var með flagg á sér og var ráðist á hann og magnaðist síðan bardaginn. Síðan fór ég á plánetuna Talus, að mig minnir, á Impirial outpost. Ekki leið á löngu þar til hópur uppreisnarmanna gekk í bæinn og slátraði hverjum einasta NPC Stormtrooper á svæðinu, ásamt þremur imp playerum. Þetta var alltaf eins. Blóðþyrstir uppreisnarmenn réðust á “Veldið”.
Þá tók ég mig til og gekk í Veldið sem covert. Eitt skiptið var ég að fara í bæinn eftir smá Imp-mission og var varla kominn í hann þegar að mér var slátrað af nokkrum rebels. Ég náði ekki að komast af hjólinu mínu og verja mig áður en ég dó. Það fyrsta sem ég gerði var að senda morðingja mínum tell og spyrja afhverju hann (og vinir hans) drápu mig. Hann sagði að ég hefði verið með flagg. Þá sagði ég að ég væri bara newb, sem ég er/var :Þ og hann svaraði með “Well, if it hadn´t been me, it would have been 10 other rebels.”

Jahámm, sem sagt: ofsóttir… þurfa að lifa í felum… færri… lélegri… með miklu færri Máttar-stríðsmenn…

Svo virðist sem að borðið hafi snúist við og að veldið og uppreisnin hafi skipt um sæti. Allavega frá mínu sjónarhorni. Ég á nú aðallega við Starsider, sem er serverinn sem ég heng á, en ég held að þetta gildi um flesta, fyrir utan Shadowfire að mig minnir. Endilega commentið og segið manni í leiðinni hvaða faction þið styðjið… og svona btw þá hef ég ALDREI hitt Rebel sem reynir ekki að drepa mig ef hann veit að ég er covert imp, hvað þá ef ég er með flagg. ALDREI!

SWG: Starsider - Ancarion
Omg ! These chokodiles ! Like OMG ! These chokodiles !