Sendi þessa grein inn sem grein vegna tveggja ástæðna, önnur er sú að ég er einfaldlega of forvitinn að vita um fleiri íslenska spilara og veit að korkarnir eru lítið lesnir, hin er sú að ég er bara frekur :P

Everquest er núna búinn að vera í gangi í rúm fimm ár og er sífellt að batna, þó það séu skiptar skoðanir á því. Viðbæturnar á þessum leik eru orðnar nokkrar og í réttri tímaröð eru þær sem hér segir

-Everquest
-Ruins of Kunark
-Scars of Velious
-Shadows of Luclin
-Planes of Power
-Legacy of Ykesha
-Lost dungeons of Norrath
-Gates of Discord(GoD)

og svo er væntanleg í lok ágúst sú áttunda sem ber heitið Omens of War, hún er í raun framhald af God og sagan um “the muramite army” mun klárast þar. GoD viðbótin hefur verið kölluð dropinn sem fyllti mælinn hjá mörgun og hafa þó nokkrir hætt vegna galla sem komu upp enn einu sinni við útgáfu nýrrar viðbótar við þennan blessaða leik. Sony online Entertainment (soe) svaraði þessu kalli spilara með því að seinka útgáfu næstu viðbótar (oow) til þess að laga þá hluti sem þurfti að laga, sem og að hafa fund með spilurum úr ýmsum hlutum leiksins, þó aðalega voru þetta svo kallaðir Guildleaders úr stórum guilds.
Þeir spilarar sem eru ekki í þessum stóru guilds, gagnrýndu þetta, að bjóða að mestu þessum hópi manna kvenna sem myndu þá mögulega einbeita sér að því að fá því breytt sem varðaði þessi “hardcore” spilara, öðru nafni addicts :p
Sjálfur fannst mér þetta rétt gert hjá þeim, því fáir vita eins mikið um game-mechanics og einmitt þessir spilarar, þannig að flestir myndu njóta þeirra innskota sem þeir kæmu með til forritara leiksins.
Leikurinn tók stórt hopp áfram í gæðum eftir þennan fund og enn er meira gott í vændum, og í það minnsta bíð ég í eftirvæntingu eftir því hvernig þetta mun þróast á næstunni.

Rasspotari
Veeshan server
meðlimur í Cestur Dei.

þetta er ég, ég vil endilega fá að vita af fleirum :) svariði og látið heyra í ykkur.
hef ákveðið að setja upp íslendinga rás sem íslendingar á bristlebane servernum settu upp að ég held upphaflega, ég hef ekki séð hana virka í þó nokkurn tíma.

rásin er /join serverwide.iceland:bestiheimi