Kæru SWG fíklar,

Á næsta smell mun verða sérstakt SWG borð fyrir þá sem vilja þannig það er tilvalið að efna til risa veiðiferðar. Lengra var ég nú ekki kominn með hugsunina og ætlaði bara að athuga hver áhuginn væri fyrir stórri íslenskri veiðiferð á Tarquinas. Ég hafði hugsað mér að laugardagurinn væri betri í þetta frekar en föstudagurinn, þótt ég efist ekki um það að það munu einhverjir taka upphitun á föstudaginn.

Hvað skal veiða og hvar skal veiða það er alveg opið til umræðu, helst langar mig að veiða Krayt Dragons þar sem ég hef ekki veitt þá, en það fer alveg eftir mætingu í veiðiferðina.

Þeir sem eru ekki á Tarquinas geta búið til kalla á honum og við munum redda ykkur basic vopnum til að geta tekið þátt í veiðinni.

Meira man ég ekki í bili, endilega svarið þessari grein eða hafið samband við mig “ingame” ef þið hafið áhuga.

Þeir sem mæta ekki á Smell eru að sjálfsögðu velkomnir.

Ipion Ockeho
- Master Weaponsmith
- Tarquinas