Allt yfirfullt af könnunum Jæja… Það eru hvorki fleiri né færri en 43 kannanir í bið hjá okkur í augnablikinu, sem þýðir að síðasta könnunin birtist 8. febrúar 2006! Hvernig væri nú að stíga aðeins á bremsuna í kannanainnsendingum næstu 3-4 mánuðina?



Að gefnu tilefni vil ég líka leiðrétta þá lygi sem ég kom af stað með myndinni ef Kerry King. Hann steig ekki á bananahýði á tónleikum, myndin er tekin við upptökur á Bloodline myndbandinu og blóðið er fake ;) Ég vil ekki að þetta verði gróusaga sem fólk fer að trúa eins og með Zeek og Desoy eða hvað þeir hétu ;)
_ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _ _