Núna á föstudaginn (nánar tiltekið 26. janúar) eru tónleikar í Hinu húsinu. Tónleikarnir eru haldnir af dordingull.com og Hinu húsinu. Það verða hljómsveitirnar Forgarður Helvítis, Snafu og Andlát (auk þess sem ein önnur hljómsveit spilar einnig). Að vanda er aðvitað FRÍTT á þessa tónleika. Á tónleikunum verða til sölu diskar með öllum þessum hljómsveitum. Ekki er enn vitað hvaða hljómsveit(ir) bætast við listann en það kemur í ljós núna í vikunni.

Allir mæta á þessa tónleika, en munið ekkert rugl! Nú er kominn tími til að rokka mikið. Tónleikarnir hefjast líklega um 20:00

valli