Jæja, nú er nýi diskurinn með KoRn kominn út.
Mér fannst nú vera kominn tími til. Það liðu sirka 2 ár á milli hverra diska en 4 ár þar til þessi kom á eftir Issues. Hvað ætli líði þá mörg ár þar til næsti kemur? En hann er þó kominn og allir aðdáendur ánægðir, að minnsta kosti ég. En það tók mig dálítin tíma að venjast honum því hann er vel frábrugðin t.d. fyrsta disknum og öðrum.
En ég og vinur minn höfum verið að velta því fyrir okkur hvort hann Jonathan fari ekki að fremja sjálfsmorð. Ég meina, ef maður hlustar á textann á nýja disknum þá bendir það svolítið til þess. En ég vona að hann geri það ekki því þá verð ég að finna mér aðra uppáhalds hljómsveit.<br><br>Múmínálfurinn
Ef sorg á hjarta þitt bítur, ef ástin er horfin á brott,