Komst loksins í ham og samdi og tók upp lag. Var ekki búinn að taka upp heilt lag frá því árið 2008, sem er náttúrulega bara fáránlegt! Anyway, hér er lagið:

http://www.youtube.com/watch?v=WlUjaglul4Y

Þið verðið bara að hunsa trommurnar. Ég prógrammaði þær með EZdrummer, og ég er enginn trommari, þannig þær eiginlega sökka. Ég er í hljómsveit með mjög góðum trommara, en við erum ekki með æfingarhúsnæði, hvað þá stúdíó, þannig við höfum ekkert getað pælt í trommunum.

Ég notaði 7 strengja gítarinn minn (Jeff Loomis signature) sem ég tjúnaði niður um hálft þrep, þannig hann er í Bb, Eb, Ab, Db, Gb, Bb, Eb.

Það sem ég notaði:

Schecter Jeff Loomis C-7 signature gítar
POD Studio UX2
POD Farm
Steinberg Nuendo 4.0
EZdrummer (Drumkit From Hell)
Windows Movie Maker

Endilega segið mér hvað ykkur finnst. Ég er aaaalveg að verða 16 ára núna í lok árs og er búinn að spila rétt tæplega 4 ár.
Schecter C-7 Jeff Loomis Signature