Föstudaginn 21. Maí ætlum við í Gruesome Glory
að halda uppá 1.árs afmælið okkar með alvöru tónleikum í Deiglunni á Akureyri!

Böndin sem ætla að spila með okkur eru heldur ekki í verri kantinum en þau eru:

Offerings, Atrum og meistararnir í Beneath.

Þetta er klárlega Roadtrip fyrir sunnlendingana og ekki á hverjum degi sem Atrum og Beneath láta sjá sig fyrir norðan þannig að það er bannað að láta sig vanta!.

Húsið opnar kl 20:30 og Offerings byrja brjálæðið stundvíslega kl 21:00!

Miðaverð er skitinn 500 kall.

ALL AGES!

Og svo hefur sú fiskisaga verið að fljúga um að Offerings verði með nokkur eintök af 6. laga EP!

Deiglan fyrir þá sem ekki vita er í gilinu á Ak, rétt við kaffi karó, þeir sem villast ganga bara í átt að metalhausunum.

Nánari umræða: http://www.taflan.org/viewtopic.php?t=48373

Bætt við 9. maí 2010 - 23:45
Kominn Poster!
Andskotinn!!!