Við vorum í stúdíó að taka upp efni fyrir okkar fyrstu EP-plötu sem ber heitið: ,,As Our City Falls." Hún kemur í fæðingu núna í júní. Nánar um það mjög fljótlega..

Við hentum laginu 14 Hours á MySpace af plötunni, en tekið skal fram að þetta er rough mix af laginu en við bara gátum ekki hamið okkur við að fleygja þessu á netið, okkur klæjaði bókstaflega í puttana.

www.myspace.com/atdodgecity

Til stóð að setja lagið á Reverbnation, en einhver vandræði voru með það og stælarnir leyndu sér ekki. Þannig þangað til verða þessi MySpace gæði að duga að sinni.

Einn meðlimur lék sér kvöld eitt fyrir stuttu að klippa saman myndefni sem hefur verið tekið af okkur og skellti því saman í lítið video með laginu undir, ef einhver hefur áhuga á því að þá er þetta mjög frískandi vitleysa.

http://www.youtube.com/watch?v=f5LM84isyYY

Vona að þið njótið, fleiri lög, tónleikar ásamt Íslandstúr og útgáfa plötunnar að sjálfsögðu eru á dagskrá hjá okkur í þessum mánuði, þannig fylgist vel með!

At Dodge City