Það er eitthvað að gerast í mér, get svo svarið það. Ég tók eftir þessu fyrst á Músíktilraunum, en þá sá ég The Vulgate og það gerðist eitthvað! Ég var að fíla þetta í botn! Á úrslitakvöldinu sá ég sá einhverja hljómsveit sem byrjar á D og spilar held ég deth metal (er samt ekki viss, það eru til skrilljón metalstefnur).

Svo í dag var ég að keyra á bíl foreldra minna og alveg greinilegt að bróðir minn hafði verið í honum því Metallica platan Kill Em All var í. Ég ákvað bara að hafa hana þarna og hlusta og ég bara iðaði öll, langaði bara að fara út og bara algjörlega losa um þessa tilfiningu sem kemur þegar ég heyri eitthvað svona…

Svo ég leita til ykkar kæru metalhausar, hvaða böndum mælið þið með fyrir nýgræðing eins og mig? :)