Er að setja þetta inn fyrir félaga mína.


Svartmálmshljómsveitin Svartidauði óskar eftir fulltime lead gítarleikara. Einungis morbidomaniacs með nægan tíma og mikinn metnað óskast, við erum ekki að leita að session eða live meðlim. Sveitin er komin á fullt skrið aftur eftir langt tímabil doða og ládeyðu, og ætlar sér stóra hluti í náinni framtíð. Upptökur og tónleikahald er í vændum, meðal annars á Eistnaflugi í ár. Við erum með frábært æfingahúsnæði á besta stað í Kópavoginum (nánar tiltekið bleiku götunni á Smiðjuveginum, rétt hjá Byko).

Helstu kröfur:

*Vera í það minnsta 18 ára gamall/gömul.
*Hafa grundvallarþekkingu á Svartmálmi og/eða Dauðarokki af ógeðslega skólanum.
*Vera fær um að spila Slayer / Autopsy sóló og Rick Rozz whammy bar madness.
*Hafa lagasmíðahæfileika, eða vera í það minnsta óhrædd(ur) við að taka fullan og virkan þátt í lagasmíðum.
*Geta mætt á æfingar að minnsta kosti 2-3 sinnum í viku.
*Eiga nauðsynlegar græjur.
*Geta tekið þátt í hljómsveitartengdum kostnaði svo sem leigu á æfingahúsnæði og upptökukostnaði.
*Þarft að vera tilbúin(n) að fara alla leið í ógeði.
*Tussur ekki velkomnar.

Nálgast má (gömul) tóndæmi á síðunni http://www.myspace.com/svartidaudi

Eitt að lokum: Ef þú heldur að þú sért ekki rétti maðurinn í stöðuna þá hefurðu líklegast rétt fyrir þér.

Hafið samband í síma 849-7054 (Þórir), gegnum einkapóst eða gegnum email/msn (svartnaetti@hotmail.com)
_________________