Ég er 22 ára (23 ára á árinu) gutti sem hefur áhuga á að rífa raddbönd með bandi sem spilar eitthvað í ætt við Bring Me The Horizon, Your Demise, Devil Sold His Soul, The Color of Violence, Every Time I Die og eitthvað svipað.

Ég vil taka það fram að ég hef ENGA sönghæfileika í hefðbundinni merkingu orðsins.

Ef einhver hefur áhuga, eða vantar hressan pilt sem hljómar eins og djöfullinn sjálfur á góðum degi og eins og dauðinn á vondum degi þegar hann tekur á … þá er ég game =)