Um daginn var ég að leita að texta við lag með Turdus Merula og fann mæspeisið.
http://www.myspace.com/turdusmerulasweden
Ég vissi ekkert um þessa hljómsveit svo ég tjékkaði á þessu og komst að því að þetta er one man project, eða one woman project, ef svo má segja.
Hún heitir Dísa og býr víst í Svíþjóð og er með þóóónokkur projects í gangi.
Ef þið skoðið top friends hjá henni sjáið þið það.

Ég veit þetta á eftir að hljóma undarlega en ég hef aldrei heyrt um annað black metal one woman project, sérstaklega ekki íslenskt.
Ég dáist að kvenmönnum sem actually geta gert góðan black metal.
Ég held allavega að hún sé íslensk, hún heitir Dísa og er með íslenskan texta á síðunni sinni.

Allavega, ég ætla koma mér að málinu.
Veit einhver eitthvað meira um þessa gellu?
Er hún sænsk eða íslensk?
Og veit einhver um eitthvað líkt þessu, aðra black metal one man project?
Ég er bara ótrúlega forvitin.


Ég var ekki alveg viss hvort ég ætti að setja þetta í Erlent þungarokk eða Íslenskt þar sem ég er ekki viss hvort þessi gella sé íslensk eða sænsk.

Bætt við 17. desember 2008 - 01:17
Og veit einhver um eitthvað líkt þessu, aðra black metal one man project?
Þá er ég að meina One woman project.