Eitt sinn var ég í tölvunni minni með góðum vini mínum Helga og var að sýna honum uppáhalds black metal böndin mín. Segir hann svo: “Hefur þú heyrt í Silencer?”
Ég svaraði neitandi og sagði hann mér að þeir væru Suicidal Black Metal band frá Svíþjóð.
Hann sagði mér einnig að söngvarinn Nattramn væri nýkominn út af geðspítala því hann væri vanur því að skera sig í stúdíóinu og grenja í lögunum sínum.

Hann sýndi mér síðan nokkur lög með þeim og hló að þeim því honum fannst þau svo kjánaleg.

Hinsvegar fýlaði ég þessi lög og ákvað að downloada disknum þeirra Death - Pierce Me þegar hann var farinn.

Eftir mikla hlustun þá var ég byrjaður að fýla þá í botn og þetta er meðalannars uppáhalds lagið mitt með þeim:
http://uk.youtube.com/watch?v=Bjc96PZriag

hér er MySpace-ið þeirra:
http://www.myspace.com/silencerswe

Er einhver annar sem fýlar þetta band?