Ég hef það alltaf á tilfinninguni að fólk sé búið að gleyma þessari hljómsveit.
Aldrei neitt talað um hana,, sem er algjör synd enda er þetta geðveik black metal hljómsveit.

Djöfull man ég eftir því þegar ég fékk ,,Fuck the Universe“ hjá Valda á sínum tíma.
Kom mér gríðarlega á óvart sú plata.
Líklegast besta Random Buy sem ég hef gert.

Hljómsveitin var stofnuð árið 1994 undir nafninu Nocta en breytti því í kringum 1999 og gáfu þá út ,,Total Eclipse” demo.
Árið 2000 gáfu þeir svo út plötuna ,,Total Soul Rape“ og árið 2002 ,,Terror Propaganda”.
Mín uppáhalds plata er án efa ,,Fuck The Universe“ sem kom út árið 2005.
Kannski vegna þess að þetta er fyrsta platan sem ég hlustaði á með þeim.
Eldra efnið er þó engu síðri.
Eftir ,,Fuck The Universe” stóð til að bandið hætti allri starfssemi en 3 meðlimir hljómsveitarinnar Joakim,John Doe og Mikael Nox ákváðu að halda áfram með hljómsveitina en Daniel trommuleikarinn þeirra ákvað að hætta.

Eins og staðan er í dag er hljómsvetin að vinna að nýju efni sem verður VONANDI gefið út núna í ár.

Ég mæli eindregið með því að fólk sem á eftir að kynna sér þetta efni geri það umsvifalaust og þeir sem hafa gleymt þeim eða ekki hlustað á þá lengi,, DRULLIST TIL AÐ SKELLA EINNI PLÖTUNNI Á FÓNINN!..

http://www.myspace.com/craftblackmetal