FÖGNUM SAMAN!


Nú er ég mikill metalhaus.
Ég er samt mjög pikkí á metalhljómsveitir þegar kemur að tónleikum.
Ég hef séð afar þéttar hljómsveitir leika fyrir okkur eins og Mastadon, Gojira og Hatesphere. Allt mjög sannfærandi og tónlistarlega þá ætla ég ekki að fara að gera upp á milli hljómsveita.
En tónleikalega séð þá er Misery Index, tónlistalega upp á sviði mest sannfærandi og áræðnasta og tala nú ekki um laaaang mest intense og no-bullhist metal band sem hefur sótt okkur heim.

T.d. var Cannibal Corspe eins og Benny Hemm Hemm í samanburði. Ég er ekki að ýkja.

Það má vel vera að sándið í TÞM jafnist ekki við ofur-onslaughtið sem ég varð vitni af á Organ (eyrun hringja enn, hálsinn er í hönki), en það verður þó fyrir ofan meðallag og I'll be damned ef extreme metalhausar landsins, ungir sem aldnir fjölmenna ekki í kvöld til að bæði styrkja þetta band og umfram allt styrkja innflytjendur á alvöru jaðar metal og svo auðvitað íslensku böndin.

Ekkert fokkings snobb.
Tussist í TÞM í kvöld!
_________________