Eins ótrúlega og það hljómar þá var ég bara að sjá síðustu 14 eða 15 skilaboð sem ég hef fengið núna áðan og þetta eru skilaboð alveg síðan í mars eða apríl.
Alltaf þegar ég ætlaði að skoða þau fékk ég bara einhvern andskotans lista yfir svokallaða “ofurhuga” og leiðbendingar um eitthvað rugl…en þetta sýnir bara hvað ég er ótrúlega misheppnaður í svona tölvumálum.
En jæja nú vitið þið afhverju ykkur sem hafið sent mér skilaboð hefur aldrei borist svör. Allavega þá varð ég ekkert allt of happy með þetta og þið meigið endilega láta mig vita að þessar upplýsingar séu mótteknar með því að svara þessu rugli mínu.
Takk fyrir og gleðileg jól